Samtök atvinnulífsins og utanríkisráðuneytið efna til fundar mánudaginn 6. febrúar í Húsi atvinnulífsins þar sem fjallað verður um byggðaþróunarsjóði ESB (ath! einnig í fjarfundi á Seyðisfirði – sjá neðar). Veli-Pekka Ihanus, finnskur sérfræðingur í málefnum atvinnulífs og byggðaþróunarsjóða, mun halda erindi um hvernig sjóðirnir geti styrkt atvinnulíf innan ESB og aðkomu atvinnulífs að úthlutun þeirra. Sérstaklega verður fjallað um möguleika til að hafa áhrif á byggðaþróun.
Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 6. hæð, mánudaginn 6. febrúar kl. 13-15. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU
Sambærilegur fundur fer fram á Akureyri 7. febrúar í Háskólanum á Akureyri:
Fundur um samband atvinnulífs og byggðaþróunarsjóða ESB - Akureyri – ATH! ÞESSI FUNDUR VERÐUR SENDUR ÚT Í FJARFUNDI OG VERÐUR HÆGT AÐ FYLGJAST MEÐ HONUM Í GRUNNSKÓLA SEYÐISFJARÐAR (GAMLA SKÓLAHÚSI) FRÁ KL. 10-12