Þriðjudagur 7. nóv. kl. 20:00
  Hefðbundinn bæjarmálafundur

verður haldinn fyrsta þriðjudag í nóvember, þann 7. 11. 2006 kl. 20:00 á Gistihúsinu á Egilsstöðum.

Fjölmennum !

Með kveðju,

f.h. stjórnar.  Helga Hreinsdóttir
 

© 2006 Héraðslistinn
Hit Counter
Dagsetning: 5. mars 2007
Aðalfundur verður haldinn 6. mars 2007
 


Aðalfundur Samtaka félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði – Héraðslistans, verður haldinn þriðjudaginn 6.3.2007 kl. 20 í Gistihúsinu á Egilsstöðum.

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Almenn bæjarmálaumræða.

Stjórnin

Dagsetning: 8. febrúar 2007
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 6. febrúar 2007
    
1.      Málefni Samtakanna
  • Ákveðið hafa aðalfund fyrsta þriðjudag í mars og auglýsa hann vel
  • Ákveðið að félagið yfirtaki lénið sem 3 félagar keyptu í nafni félagsins en á eigin kostnað
2.      Almennar umræður urðu m.a. um eftirfarandi málefni
  • Fjarskiptasjóð og háhraðatengingar í sveitarfélaginu, m.a. með t.t. viðbragðsáætlunar v/ Kárahnjúkavirkjunar
  •  Viðfangsefni náttúruverndarnefndar, m.a. áform um umhverfisátak, slóðamerkingu, málefni sorpsamlags og lykiltölur í umhverfismálum.
  • Hreindýramál
  • Upphæðir leikskólagjalda og samanburð við önnur svfél., sbr. grein í Morgunblaði
  • Heimasíðu sveitarfélagins og tregðu í henni
  • Væntanlegt aðalskipulag og samninga við umsjónaraðila fyrir það
  • Skipulagsmál í Fellabæ
  • Væntanlegan flutning Barra í Fellabæ

F.h. stjórnar,
Helga Hreinsdóttir.
 

Dagsetning: 9. nóvember 2006
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 7. nóvember
  Eftirfarandi m.a. rætt:
  • Fjárhagsáætlun, nýmæli er að starfsáætlanir eru notaðar sem grunnur að fjárhagsáætlunum.
  • Sláturhúsmál.
  • Verklag við meirihlutafundi og hugsanleg þörf fyrir að bæjarfulltrúar haldi meirihluta fundi af og til einir.
  • Miðbæjarhópur.
  • Fráveitumál.
  • Fótboltavellir í sveitarfélaginu.
F.h. stjórnar,
Helga Hreinsdóttir.
 
Dagsetning: 2. nóvember 2006
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 7. nóvember
  Boðað er til hefðbundins þriðjudagsfundar 7.11. nk. á Gistihúsinu á Egilsstöðum kl. 20:00 að venju.
Mætum öll!

F.h. stjórnar,
Helga Hreinsdóttir.

 
Dagsetning: 16. október 2006
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 3. október
 

 
Eftirfarandi málefni voru kynnt og rædd:

  • Farið yfir drög að samþykktum um atvinnurekstur í íbúðabyggð.
  • Stefna sveitarfélagsins “Þekking, Þjónusta, Velferð”. 
  • Umhverfismál
  • Dreifbýlismál
  • Þekkingarsetur
  • Íþróttavallarmál
  • Fjármál sveitarfélagsins
  • Skólamál
  • Ljósastaurar í dreifbýli
  • SSA – þing
  • Sláturhúsmálið


 

Dagsetning: 28. september 2006
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 3. október
 
Hér með er boðað til hefðbundins fundar í Félagshyggjunni,  kl. 20:00 á Gistihúsinu á Egilsstöðum þriðjudaginn 3.10. 

Höldum áfram öflugu starfi sumarsins!

Með kveðju, f.h. stjórnar.  Helga Hreinsdóttir
 
Dagsetning: 6. september 2006
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 5. september
  Eftirfarandi var rætt:
  • Deiliskipulag á hæðinni á Egilsstöðum og ný lóð þar
  • Niðurstaða vinnuhóps um atvinnustarfssemi í íbúðabyggð
  • Endurskoðun stefnu Fljótsdalshéraðs – þekking, þjónusta og velferð
  • Nýtt brunasamlag Fljótsdalshéraðs, Vopnafjarðar, Djúpavogs, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar. og Fljótsdalshrepps. Breiðdælingar hafa dregið sig út.
  • Bráðónýtar götur, verklag við viðhaldsframkvæmdir og ókláraðar framkvæmdir
  • Aðalskipulag – staðan ekki góð þar sem Jens umsjónarmaður skipulagsmála hjá sveitarfélaginu hefur hætt stöfum. Búið að auglýsa starfið.
  • Kárahnjúkavirkjun – áhættumat – kynningarfundur á Brúarási á fimmtudaginn.
  • Viðbragðsáætlun er til en ekki fullkláruð
  • Áhættumat fyrir stíflumannvirki er til og hefur verið endurskoðað á framkvæmdatímanum – stíflan með innbyggðu vaktkerfi
  • Skólamál – virðast vera á góðu róli
  • Áætlunarferðir Egilsstaðir - Hallormsstaður - Brúarás - Eiðar,  tilraunaakstur hafinn.
  • Staða akstursíþróttasvæðis ofan við Mýnes
  • Staða skotsvæðis við Þuríðarstaði
  • Vatnsveitumál
Dagsetning: 30. ágúst 2006
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 5. september
 
Héraðslistinn, samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði boðar hér með til fundar.  Hefðbundinn bæjarmálafundur verður haldinn fyrsta þriðjudag í september, þ.e. 5.9.2006 kl. 20:00.  Gistihúsið er enn upptekið af sumartraffík, en aðstaða hefur fengist hjá Fræðslunetinu.
 

Fjölmennum !
F.h. stjórnar, Helga Hreinsdóttir
 

Dagsetning: 14. ágúst 2006
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 15. ágúst
Héraðslistinn, samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði mun halda hefðbundinn þriðjudagsfund, ekki fyrsta þriðjudag í þesum mánuði, heldur næsta þriðjudag, þ.e. þann 15.8. kl. 20:00.
Því miður er ekki hægt að vera á hefðbundnum stað , þannig að ég býð ykkur til skrifstofu HAUST að Miðvangi 1-3. 


Með bestu kveðjum og von um að sem flestir geti mætt.


F.h. stjórnar, Helga Hreinsdóttir

Dagsetning: 7. júní 2006
Eiríkur Björn áfram bæjarstjóri
Handsalaður hefur verið ráðningarsamningur milli Eiríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs og meirihluta bæjarstjórnar um áframhaldandi starf Eiríks sem bæjarstjóra.

Samningurinn er grundvallaður á málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Héraðslistans um áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjórn en sá samningur var gerður fyrir helgi.

Reiknað er með að fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verði fljótlega eftir helgi og þá verði ráðningarsamningur við Eirík Björn staðfestur og jafnframt verður málefnaskrá meirihlutans kynnt.

(Úr frétt af www.egilsstadir.is)
Dagsetning: 2. júní 2006
Meirihlutasamstarf Héraðslistans og Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði
Bæjarfulltrúar Héraðslistans og Sjálfstæðisflokks hafa náð endurnýjuðu samkomulagi um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs kjörtímabilið 2006 – 2010. Soffía Lárusdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, verður forseti bæjarstjórnar, en Baldur Pálson, oddviti Héraðslistans, verður formaður bæjarráðs og þá hefur verið ákveðið að ganga til samninga við núverandi bæjarstjóra, Eirík Bj. Björgvinsson, um að hann sinni því starfi áfram. Skipun í aðrar nefndir og ráð á vegum bæjarins verður tilkynnt við afgreiðslu í bæjarstjórn, en samkomulag er um skipan og formennsku.

Stefna meirihlutans er að halda áfram þeirri miklu uppbygginu sem núverandi meirihluti hefur lagt grunninn að og þannig skapa öflugt og fjölskylduvænt sveitarfélag, með skilvirka stjórnsýslu sem er í stakk búið til að takast á við lögboðnar skyldur sem og ný verkefni. Markmiðið er að efla Héraðið sem eina félags- og menningarheild og treysta þar atvinnu og mannlíf til framtíðar.

Síðustu daga hefur verið unnin metnaðarfull málefnaskrá sem meirihlutasamstarfið byggir á auk þess sem til grundvallar liggur ný samþykkt stefna Fljótsdalshéraðs sem sett er fram undir kjörorðunum þekking, þjónusta og velferð. Málefnaskráin verður kynnt á fyrsta bæjarstjórnarfundi nýrrar bæjarstjórnar.

Málefnasamningur um meirihlutasamstarf Héraðslista og Sjálfstæðisflokks á Fljótsdalshéraði var staðfestur af oddvitum flokkana þann 1. júní 2006 á Gistihúsinu Egilsstöðum.
 
Dagsetning: 29. maí 2006
Er líf eftir kosningar ?
Nú að afloknum kosningum munum við gera okkar besta til að setja hér inn það helsta sem er að gerast í starfi Héraðslistans.  Þessa dagana standa yfir viðræður eins og fram kemur hér fyrir neðan.  Um leið og einhver niðurstaða kemur, verður hún birt hér.

Fylgist með áfram.
Dagsetning: 29. maí 2006
Úrslit kosninganna.

Úrslit kosninga liggja nú fyrir:

  • Á listinn fékk 258 atkvæði og 2 fulltrúa í bæjarstjórn
  • B listinn fékk 486 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn
  • D listinn fékk 444 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn
  • L listinn fékk 404 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn

Við töpuðum fylgi frá síðustu sveitarstjórnarkosningum, en við getum samt nokkuð vel við unað.
Stefnt er að áframhaldandi meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðismönnum svo við fáum fleiri tækifæri til góðra verka fyrir Fljótsdalshérað og íbúa þess og til áhrifa í anda félagshyggjunnar.

Við þökkum ykkur, ágætu stuðningsmenn kærlega, fyrir stuðninginn og alla þá aðstoð sem þið hafið lagt fram í kosningabaráttunni. Förum brosandi út í sumarið og njótum þess að vera íbúar í hinu fallega og veðursæla sveitarfélagi, Fljótsdalshéraði.

Frambjóðendur Héraðslistans.

• fréttasafn - þar finnur þú eldri fréttir.

upp ı til baka

 
Kosningaskrifstofa: Nían • Miðvangi 1 • Egilsstöðum • sími: 471 2628 • xlaust@simnet.is