Þriðjudagur 7. nóv. kl. 20:00
  Hefðbundinn bæjarmálafundur

verður haldinn fyrsta þriðjudag í nóvember, þann 7. 11. 2006 kl. 20:00 á Gistihúsinu á Egilsstöðum.

Fjölmennum !

Með kveðju,

f.h. stjórnar.  Helga Hreinsdóttir
 

© 2006 Héraðslistinn
 
Dagsetning: 7. júní 2006
Eiríkur Björn áfram bæjarstjóri
Handsalaður hefur verið ráðningarsamningur milli Eiríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs og meirihluta bæjarstjórnar um áframhaldandi starf Eiríks sem bæjarstjóra.

Samningurinn er grundvallaður á málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Héraðslistans um áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjórn en sá samningur var gerður fyrir helgi.

Reiknað er með að fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verði fljótlega eftir helgi og þá verði ráðningarsamningur við Eirík Björn staðfestur og jafnframt verður málefnaskrá meirihlutans kynnt.

(Úr frétt af www.egilsstadir.is)
Dagsetning: 2. júní 2006
Meirihlutasamstarf Héraðslistans og Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði
Bæjarfulltrúar Héraðslistans og Sjálfstæðisflokks hafa náð endurnýjuðu samkomulagi um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs kjörtímabilið 2006 – 2010. Soffía Lárusdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, verður forseti bæjarstjórnar, en Baldur Pálson, oddviti Héraðslistans, verður formaður bæjarráðs og þá hefur verið ákveðið að ganga til samninga við núverandi bæjarstjóra, Eirík Bj. Björgvinsson, um að hann sinni því starfi áfram. Skipun í aðrar nefndir og ráð á vegum bæjarins verður tilkynnt við afgreiðslu í bæjarstjórn, en samkomulag er um skipan og formennsku.

Stefna meirihlutans er að halda áfram þeirri miklu uppbygginu sem núverandi meirihluti hefur lagt grunninn að og þannig skapa öflugt og fjölskylduvænt sveitarfélag, með skilvirka stjórnsýslu sem er í stakk búið til að takast á við lögboðnar skyldur sem og ný verkefni. Markmiðið er að efla Héraðið sem eina félags- og menningarheild og treysta þar atvinnu og mannlíf til framtíðar.

Síðustu daga hefur verið unnin metnaðarfull málefnaskrá sem meirihlutasamstarfið byggir á auk þess sem til grundvallar liggur ný samþykkt stefna Fljótsdalshéraðs sem sett er fram undir kjörorðunum þekking, þjónusta og velferð. Málefnaskráin verður kynnt á fyrsta bæjarstjórnarfundi nýrrar bæjarstjórnar.

Málefnasamningur um meirihlutasamstarf Héraðslista og Sjálfstæðisflokks á Fljótsdalshéraði var staðfestur af oddvitum flokkana þann 1. júní 2006 á Gistihúsinu Egilsstöðum.
 
Dagsetning: 29. maí 2006
Er líf eftir kosningar ?
Nú að afloknum kosningum munum við gera okkar besta til að setja hér inn það helsta sem er að gerast í starfi Héraðslistans.  Þessa dagana standa yfir viðræður eins og fram kemur hér fyrir neðan.  Um leið og einhver niðurstaða kemur, verður hún birt hér.

Fylgist með áfram.
Dagsetning: 29. maí 2006
Úrslit kosninganna.
Úrslit kosninga liggja nú fyrir:
  • Á listinn fékk 258 atkvæði og 2 fulltrúa í bæjarstjórn
  • B listinn fékk 486 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn
  • D listinn fékk 444 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn
  • L listinn fékk 404 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn

Við töpuðum fylgi frá síðustu sveitarstjórnarkosningum, en við getum samt nokkuð vel við unað.
Stefnt er að áframhaldandi meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðismönnum svo við fáum fleiri tækifæri til góðra verka fyrir Fljótsdalshérað og íbúa þess og til áhrifa í anda félagshyggjunnar.

Við þökkum ykkur, ágætu stuðningsmenn kærlega, fyrir stuðninginn og alla þá aðstoð sem þið hafið lagt fram í kosningabaráttunni. Förum brosandi út í sumarið og njótum þess að vera íbúar í hinu fallega og veðursæla sveitarfélagi, Fljótsdalshéraði.

Frambjóðendur Héraðslistans.

Dagsetning: 27. maí 2006
Til kjósenda !
Frambjóðendur Héraðslistans óska íbúum Fljótsdalshéraðs ánægjulegs kjördags.

Við þökkum hlý orð og góða strauma í kosningabaráttunni.

Við treystum á ykkar stuðning í dag !
Dagsetning: 26.maí 2006
Kosningaskrifstofan opin allan daginn !
Á morgun - kjördag - verður kosningaskrifstofan opin frá kl. 10 í fyrramálið og þar til sigur er í höfn !

Kosningakaffi frá kl. 14:00
• Ökum fólki á kjörstað ef þess er óskað.
• Aðstoð vegna utankjörfundaratkvæða.

Sími kosningaskrifstofunnar er 471-2628.
Dagsetning: 25.maí 2006
Skipulag á Egilsstöðum
– minnisleysi B-listans.
Nýtt efni !
Sigurður Ragnarsson, sem setið hefur í Skipulags- og byggingarnefnd Fljótsdalshéraðs fyrir hönd L-listans undanfarin 4 ár, svarar fullyrðingum frambjóðenda B-listans varðandi skipulagsmál á Egilsstöðum og fjármál þeim tengd.

Lesa meira...
Skoðið Umræðuna okkar á • Umræðan.
Dagsetning: 25.maí 2006
Kosningar framundan
Nýtt efni
Lokaorð Katrínar Ásgeirsdóttur á sameiginlegum fundi frambjóðanda um helgina.
Lesa meira...

Skoðið Umræðuna okkar á • Umræðan.
Dagsetning: 25.maí 2006
Skólamálin
Nýtt efni
Lokaorð Jónínu Rós Guðmundsdóttur á sameiginlegum fundi frambjóðanda um helgina eru nú komin í umræðuna.
Lesa meira...
Skoðið Umræðuna okkar á • Umræðan.
Dagsetning: 23. maí 2006
Um Búrapólitík
Nýtt efni
Árni Ólason skrifar skemmtilega grein um sérstakar persónur á hinum pólitíska vettvangi sem hann hefur kostið að nefna Búra. Er "Búri" í þér?

Lesa meira...

Skoðið Umræðuna okkar á • Umræðan.
Dagsetning: 23. maí 2006
3. tölublað Skerplu í prentun

Þriðja tölublað Skerplu er nú í prentun og verður borið í hús í vikuni.

Þetta tölublað er tileinkað stuttri kynningu af frambjóðendum Héraðslistann. Fólkið sem í forsvari er fyrir samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði.

Einnig er í blaðinu farið stuttlega yfir helstu verkeni sem listinn skilgreinir fyrir komandi kjörtímabil.

skoða PDF skjal af þriðja tölublaði Skerplu
Dagsetning: 23. maí 2006
Skemmtilegt kaffispjall á Hallormsstað
Fimm gestir drukku kaffi með frambjóðendunum, Baldri, Jónínu Rós, Katrínu og Skúla. Þessir 5 gestir voru svo líflegir og hressir að þeir voru a.m.k. á við 50 ! Tveir ungir menn kíktu líka aðeins á okkur og sögðu okkur hvernig skemmtistaður ætti að vera.  Sundlaugarmál voru ofarlega í hugum Hallormsstaðabúa – allir voru sammála um hversu leiðinlegt væri að hafa tóma sundlaug, yfir hásumarið, á einum helsta ferðamannastað landsins.  Húsnæðismál leikskólans og grunnskólans voru líka til umræðu, svo og umhirða lóða við skólann.  Að lokum skoðuðu frambjóðendur í lotningu nýju smíðastofuna og höfðu þeir sjaldan litið slíka dýrð. Skemmtilegt kvöld á Hallormsstað hjá frambjóðendum sem héldu glaðir heim á leið um ellefuleytið í félagshyggjubílnum hans Baldurs.
Dagsetning: 20. maí 2006
Ný grein í umræðunni
Nýtt efni, grein Margrétar Hákonardóttur um leikskóla er komin á vefinn. Við hvetjum einnig til umræðu og athugasemda sem þú getur komið á framfæri við greinarnar í umræðunni okkar.

Skoðið Umræðuna okkar á • Umræðan
Dagsetning: 18. maí 2006
Skerpla komin út öðru sinni

Annað tölublað Skerplu er nú komið í dreifingu.

Myndirnar á forsíðunni eru af nýja leikskólanum, Skógarlandi og hinsvegar frá sparkvallaraðstöðu við grunnskóla Egilsstaða. Þetta eru dæmi af velheppnuðum framkvæmdum frá kjörtímabilinu sem nú er senn á enda.

Að þessu sinni fjallar Skerpla um hvaða árangur hefur náðst á síðustu misserum.

skoða PDF skjal af öðru tölublaði Skerplu
Dagsetning: 17. maí 2006
Spurningar frá lesendum.
Nýtt efni !
Árni Ólason svarar spurningu um aðstöðu fyrir fimleika.  Þetta efni er að finna á síðunni • Spurningar og svör
Dagsetning: 15. maí 2006
Spurningar frá lesendum.
Nýtt efni !
Katrín Ásgeirsdóttir svarar spurningu um málefni eldri borgara.  Þetta efni er að finna á síðunni • Spurningar og svör
Dagsetning: 15. maí 2006
Kaffispjall á Eiðum.
Frambjóðendur L-listans boða til kaffispjalls í Barnaskólanum á Eiðum í kvöld kl. 20:00.  Þar munu þeir leitast við að svara þeim spurningum sem koma frá fundarmönnum.
Gott tækifæri til að spjalla beint við frambjóðendur !
Dagsetning: 13. maí 2006
Ný tækifæri til að taka þátt í umræðunni.
Nú hafa verið settir inn umræðuþræðir aftan við hverja spurningu sem frambjóðendur hafa svarað.  Þar getið þið komið ykkar athugasemdum á framfæri. Þetta efni er að finna á síðunni • Spurningar og svör
Dagsetning: 12. maí 2006
Spurningar frá lesendum.
Nýtt efni !
 Baldur Pálsson svarar spurningu um Lagarfljótsorminn og tengd málefni og Skúli Björnsson svarar fyrirspurn um stefnu varðandi jarðgöng á miðausturlandi.  Þetta efni er að finna á síðunni
• Spurningar og svör
Dagsetning: 10. maí 2006
Skerpla komin út

Fyrsta tölublað Skerplu er í prentun og verður dreift til allra íbúa sveitarfélagsins innan tíðar.

Forsíðuna prýðir mynd af þeim fjórum sem skipa efstu sæti listans fyrir komandi kosningar, þau Baldur Pálsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Ásgeirsdóttir og Árni Ólason.

Skerpla fjallar svo að þessu sinni, stuttlega um helstu stefnumál Héraðslistans, en næsta tölublaðs er að vænta eftir vikutíma.

skoða PDF skjal af Skerplu
Dagsetning: 10. maí 2006
Árni Ólason kosningastjóri

Árni Ólason, sem skipar 4. sæti á framboðslista Héraðslistans, hefur tekið að sér að halda í þræði og hafa umsjón með verkefnalista og kosningastjórn.  Honum til aðstoðar verður Hjalti Heiðar Þorkelsson.

Dagsetning: 10. maí 2006
Hvað segja lesendur ?
Í athugasemdum við pistla frá frambjóðendum kemur ýmislegt fram, sumt í beinum tengslum við pistlana, annað ekki.  Dæmi um slíkt er þetta hér: 

Jón Guðmundsson, fv. tónlistarkennari segir m.a. í tengslum við erfiðleika við að fá tónlistarkennara hingað:
"Uppgangurinn dregur ekki tónlistarfólk að...fælir frekar. Þess vegna segi ég: ÞIÐ VERÐIÐ AÐ BJÓÐA FÓLKI EITTHVAÐ ef þið viljið fá hæfa Íslendinga."

Tjörvi Hrafnkelsson svarar:
Ég tel reyndar að það sé ekki rétt að vera að bjóða eitthvað sérstaklega til að fá fólk til að koma, ég held að vinnuumhverfi og stöðugleiki þess umhverfis sé það sem hvetur til fólk til að koma og vera. Tónlistarkennarar með metnað vilja upplifa hvata og árangur, rétt eins og allir aðrir. Þess vegna er lykilatriði að skapa eftirsóknaverða umgjörð í kringum tónlistarnám, með stöðugleika og framtíðarsýn.

Skoðið Umræðuna okkar á  • Umræðan

Dagsetning: 08. maí 2006
Spurningar frá lesendum
Nýtt efni, Baldur Pálsson svarar spurningu um Héraðslistann og Jónína Rós svara fyrirspurn um stefnu varðandi val á bæjarlistamanni Fljótsdalshéraðs.  Þetta efni er að finna á síðunni
• Spurningar og svör
Dagsetning: 08. maí 2006
Greinar frá frambjóðendum
Nýtt efni, grein Árna Ólasonar um íþróttavallarmál og grein Katrínar Ásgeirsdóttur um málefni dreifbýlisins, er komið á vefinn.  Hverri grein fylgir hlekkur á athugasemdakerfi, þar sem unnt er að koma athugasemdum lesenda á framfæri.  Fleiri greinar eru væntanlegar í dag og næstu daga. Skoðið Umræðuna okkar á • Umræðan
Dagsetning:05. maí 2006
Fundur um Barnaskólann á Eiðum
Kosningabaráttan vegna sveitarstjórnarkosninga á Fljótsdalshéraði hófst í gærkvöldi, fimmtudagkvöldið 4. maí með nokkuð óvenjulegum hætti.

Búnaðarfélag Eiðaþinghár efndi til umræðufundar um framtíð Barnaskólans á Eiðum og bauð framboðunum fjórum sem bjóða fram hér að senda fulltrúa sína á fundinn.

Fyrir hönd L- listans fóru Baldur Pálsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir á fundinn og ræddu málin hvort út frá sínu sviði, Baldur talaði um húsnæði og viðhaldsmál og Jónína meira um starfið og að e.t.v. væru ný starfstækifæri spennandi kostur í þessu húsnæði.

Húsfyllir var á fundinum sem var hinn skemmtilegasti og öll framboðin skildu vel áhyggjur heimamanna af framtíð Eiðastaðar.

Dagsetning:05. maí 2006
Spurningar og svör
Nýr hlekkur er kominn á síðuna.  Spurningar og svör.  Með því að smella á hann geta lesendur sent inn spurningar um málefni sveitarfélagsins til frambjóðenda Héraðslistans.  Við biðjum ykkur að vera málefnaleg og skrifa undir réttu nafni.
Dagsetning:05. maí 2006
Um utankjörfundaratkvæði
Vegna fyrirspurna um reglur um utankjörfundaratkvæði og atkvæðagreiðslu skal lesendum bent á heimasíðu um Sveitarstjórnarkosningarnar 2006 . Á þeirri síðu er að finna allar reglur um kosningarnar og þar með utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

Hér í sveitarfélaginu er hægt að kjósa á skrifstofu sýslumanns.  Þeir sem eru á kjörskrá á Fljótsdalshéraði, en kjósa annars staðar, geta sent atkvæði sín til: 

Héraðslistinn - Kosningaskrifstofa                 Miðvangi 1                                                            700 Egilsstaðir

Dagsetning:02. maí 2006
Listaverk prýða kosningaskrifstofuna
Ólöf Björk Bragadóttir(Lóa) hefur lánað nokkur verka sinna á veggi kosningaskrifstofunnar.  Þarf ekki að fara um það mörgum orðum hve mikil prýði er að þeim.  Á vefsíðu Lóu má sjá fleiri verk hennar.
Dagsetning:28. apríl 2006
Kosningaskrifstofan opnuð !
Kosningaskrifstofa Héraðslistann var formlega opnuð á efri hæð Níunnar að Miðvangi 1 að kvöldi 28. apríl .  Þar mætti góður hópur fólks á öllum aldri, skrafað var og skeggrætt um hin ýmsu málefni.  Boðið var upp á kaffi og meðlæti og línur lagðar fyrir starf næstu daga.

Opnunartími skrifstofunnar verður auglýstur hér á síðunni dag frá degi fyrst um sinn, en færist væntanlega í fastari skorður er nær dregur kosningum.

Dagsetning:23. apríl 2006
Kosningaskrifstofan
Á sumardaginn fyrsta fengum við lykil að glæsilegri kosningaskrifstofu á 2. hæð Níunnar á Egilsstöðum. Þar var skrúbbað og skúrað, húsgögn flutt fram og til baka til að hægt væri að hefja vinnu af fullum krafti laugardaginn 22. apríl.

Laugardaginn 22. apríl hittust frambjóðendur síðan kl 10 fh. til að vinna í stefnumótunarvinnu á kosningaskrifstofunni. Unnið var gott dagsverk og línur orðnar skýrar.

Sunnudaginn 23. apríl fór fram samræmingarvinna í málaflokkum og heildarmynd er að komast á stefnuna.
Dagsetning:4. apríl 2006
Framboðslisti kynntur
Uppstillinganefnd á vegum Héraðslistans kynnti framboðslista samtakanna til sveitastjórnarkosninga á opnum fundi á Gistihúsinu á Egilsstöðum 4. apríl.
Í uppstillinganefnd sátu:
Katrín Ásgeirsdóttir
Þorkell Sigbjörnsson
Þorsteinn P. Gústafsson

Listinn er kynntur annars staðar á síðunni.

Frambjóðendur hittust á Ekkjufelli síðasta vetrardag, báru saman bækur sínar, borðuðu saman og lögðu línur.

upp ı til baka

 
Kosningaskrifstofa: Nían • Miðvangi 1 • Egilsstöðum • sími: 471 2628 • xlaust@simnet.is