 |
Dagsetning: 5. mars 2007 |
 |
Aðalfundur verður haldinn 6. mars 2007 |
 |
 |
|
|
Aðalfundur Samtaka félagshyggjufólks á
Fljótsdalshéraði – Héraðslistans, verður haldinn þriðjudaginn
6.3.2007 kl. 20 í Gistihúsinu á Egilsstöðum.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Almenn bæjarmálaumræða.
Stjórnin
|
 |
Dagsetning: 8. febrúar 2007 |
 |
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 6.
febrúar 2007 |
 |
 |
|
|
1. Málefni Samtakanna
- Ákveðið hafa aðalfund fyrsta þriðjudag í mars og auglýsa
hann vel
- Ákveðið að félagið yfirtaki lénið sem 3 félagar keyptu í
nafni félagsins en á eigin kostnað
2. Almennar umræður urðu m.a. um eftirfarandi málefni
- Fjarskiptasjóð og háhraðatengingar í sveitarfélaginu,
m.a. með t.t. viðbragðsáætlunar v/ Kárahnjúkavirkjunar
- Viðfangsefni náttúruverndarnefndar, m.a. áform um
umhverfisátak, slóðamerkingu, málefni sorpsamlags og
lykiltölur í umhverfismálum.
- Hreindýramál
- Upphæðir leikskólagjalda og samanburð við önnur svfél.,
sbr. grein í Morgunblaði
- Heimasíðu sveitarfélagins og tregðu í henni
- Væntanlegt aðalskipulag og samninga við umsjónaraðila
fyrir það
- Skipulagsmál í Fellabæ
- Væntanlegan flutning Barra í Fellabæ
F.h. stjórnar,
Helga Hreinsdóttir.
|
 |
Dagsetning: 9. nóvember 2006 |
 |
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 7. nóvember |
 |
 |
|
|
Eftirfarandi m.a. rætt:
- Fjárhagsáætlun, nýmæli er að starfsáætlanir eru notaðar
sem grunnur að fjárhagsáætlunum.
- Sláturhúsmál.
- Verklag við meirihlutafundi og hugsanleg þörf fyrir að
bæjarfulltrúar haldi meirihluta fundi af og til einir.
- Miðbæjarhópur.
- Fráveitumál.
- Fótboltavellir í sveitarfélaginu.
F.h. stjórnar,
Helga Hreinsdóttir.
|
 |
Dagsetning: 2. nóvember 2006 |
 |
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 7. nóvember |
 |
 |
|
|
Boðað er til hefðbundins þriðjudagsfundar 7.11. nk. á
Gistihúsinu á Egilsstöðum kl. 20:00 að venju.
Mætum öll!
F.h. stjórnar,
Helga Hreinsdóttir.
|
 |
Dagsetning: 16. október 2006 |
 |
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 3. október |
 |
 |
|
|
Eftirfarandi málefni voru kynnt og rædd:
- Farið yfir drög að samþykktum um atvinnurekstur í
íbúðabyggð.
- Stefna sveitarfélagsins “Þekking, Þjónusta, Velferð”.
- Umhverfismál
- Dreifbýlismál
- Þekkingarsetur
- Íþróttavallarmál
- Fjármál sveitarfélagsins
- Skólamál
- Ljósastaurar í dreifbýli
- SSA – þing
- Sláturhúsmálið
|
 |
 |
 |
Dagsetning: 28. september 2006 |
 |
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 3. október |
 |
 |
|
|
Hér með er boðað til hefðbundins fundar í Félagshyggjunni, kl.
20:00 á Gistihúsinu á Egilsstöðum þriðjudaginn 3.10.
Höldum áfram öflugu starfi sumarsins!
Með kveðju, f.h. stjórnar. Helga
Hreinsdóttir
|
 |
 |
 |
Dagsetning: 6. september 2006 |
 |
Punktar af bæjarmálafundi þriðjudagskvöldið 5. september |
 |
 |
|
|
Eftirfarandi var rætt:
- Deiliskipulag á hæðinni á Egilsstöðum og
ný lóð þar
- Niðurstaða vinnuhóps um atvinnustarfssemi
í íbúðabyggð
- Endurskoðun stefnu Fljótsdalshéraðs –
þekking, þjónusta og velferð
- Nýtt brunasamlag Fljótsdalshéraðs,
Vopnafjarðar, Djúpavogs, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar. og
Fljótsdalshrepps. Breiðdælingar hafa dregið sig út.
- Bráðónýtar götur, verklag við
viðhaldsframkvæmdir og ókláraðar framkvæmdir
- Aðalskipulag – staðan ekki góð þar sem
Jens umsjónarmaður skipulagsmála hjá sveitarfélaginu hefur
hætt stöfum. Búið að auglýsa starfið.
- Kárahnjúkavirkjun – áhættumat –
kynningarfundur á Brúarási á fimmtudaginn.
- Viðbragðsáætlun er til en ekki fullkláruð
- Áhættumat fyrir stíflumannvirki er til og
hefur verið endurskoðað á framkvæmdatímanum – stíflan með
innbyggðu vaktkerfi
- Skólamál – virðast vera á góðu róli
- Áætlunarferðir Egilsstaðir -
Hallormsstaður - Brúarás - Eiðar, tilraunaakstur hafinn.
- Staða akstursíþróttasvæðis ofan við Mýnes
- Staða skotsvæðis við Þuríðarstaði
- Vatnsveitumál
|
 |
 |
 |
Dagsetning: 30. ágúst 2006 |
 |
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 5. september |
 |
 |
|
|
Héraðslistinn, samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði boðar
hér með til fundar. Hefðbundinn bæjarmálafundur verður haldinn
fyrsta þriðjudag í september, þ.e. 5.9.2006 kl. 20:00.
Gistihúsið er enn upptekið af sumartraffík, en aðstaða hefur
fengist hjá Fræðslunetinu.
Fjölmennum !
F.h. stjórnar, Helga Hreinsdóttir
|
 |
 |
 |
Dagsetning: 14. ágúst 2006 |
 |
Bæjarmálafundur þriðjudagskvöldið 15. ágúst |
 |
 |
 |
Héraðslistinn, samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði mun
halda hefðbundinn þriðjudagsfund, ekki fyrsta þriðjudag í þesum
mánuði, heldur næsta þriðjudag, þ.e. þann 15.8. kl. 20:00.
Því miður er ekki hægt að vera á hefðbundnum stað , þannig
að ég býð ykkur til skrifstofu HAUST að Miðvangi 1-3.
Með bestu kveðjum og von um að sem flestir geti mætt.
F.h. stjórnar, Helga Hreinsdóttir
|
 |
 |
 |
Dagsetning: 7. júní 2006 |
 |
Eiríkur Björn áfram bæjarstjóri |
 |
 |
 |
Handsalaður
hefur verið ráðningarsamningur milli Eiríks Björns
Björgvinssonar bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs og meirihluta
bæjarstjórnar um áframhaldandi starf Eiríks sem bæjarstjóra.
Samningurinn er grundvallaður á málefnasamningi
Sjálfstæðisflokks og Héraðslistans um áframhaldandi
meirihlutasamstarf í bæjarstjórn en sá samningur var gerður
fyrir helgi.
Reiknað er með að fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verði
fljótlega eftir helgi og þá verði ráðningarsamningur við Eirík
Björn staðfestur og jafnframt verður málefnaskrá meirihlutans
kynnt.
(Úr frétt af www.egilsstadir.is) |
 |
 |
 |
Dagsetning: 2. júní 2006 |
 |
Meirihlutasamstarf Héraðslistans og
Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði |
 |
 |
 |
Bæjarfulltrúar Héraðslistans og
Sjálfstæðisflokks hafa náð endurnýjuðu samkomulagi um myndun
meirihluta í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs kjörtímabilið 2006 –
2010. Soffía Lárusdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, verður
forseti bæjarstjórnar, en Baldur Pálson, oddviti Héraðslistans,
verður formaður bæjarráðs og þá hefur verið ákveðið að ganga til
samninga við núverandi bæjarstjóra, Eirík Bj. Björgvinsson, um
að hann sinni því starfi áfram. Skipun í aðrar nefndir og ráð á
vegum bæjarins verður tilkynnt við afgreiðslu í bæjarstjórn, en
samkomulag er um skipan og formennsku.
Stefna meirihlutans er að halda áfram þeirri miklu uppbygginu
sem núverandi meirihluti hefur lagt grunninn að og þannig skapa
öflugt og fjölskylduvænt sveitarfélag, með skilvirka stjórnsýslu
sem er í stakk búið til að takast á við lögboðnar skyldur sem og
ný verkefni. Markmiðið er að efla Héraðið sem eina félags- og
menningarheild og treysta þar atvinnu og mannlíf til framtíðar.
Síðustu daga hefur verið unnin metnaðarfull málefnaskrá sem
meirihlutasamstarfið byggir á auk þess sem til grundvallar
liggur ný samþykkt stefna Fljótsdalshéraðs sem sett er fram
undir kjörorðunum þekking, þjónusta og velferð. Málefnaskráin
verður kynnt á fyrsta bæjarstjórnarfundi nýrrar bæjarstjórnar.
Málefnasamningur um meirihlutasamstarf Héraðslista og
Sjálfstæðisflokks á Fljótsdalshéraði var staðfestur af oddvitum
flokkana þann 1. júní 2006 á Gistihúsinu Egilsstöðum.
|
 |
 |
 |
Dagsetning: 29. maí 2006 |
 |
Er líf eftir kosningar ? |
 |
 |
 |
Nú að afloknum kosningum munum við gera okkar
besta til að setja hér inn það helsta sem er að gerast í starfi
Héraðslistans. Þessa dagana standa yfir viðræður eins og
fram kemur hér fyrir neðan. Um leið og einhver niðurstaða
kemur, verður hún birt hér.
• Fylgist með áfram. |
 |
 |
 |
Dagsetning: 29. maí 2006 |
 |
Úrslit kosninganna. |
 |
 |
 |
Úrslit kosninga liggja nú fyrir:
- Á listinn fékk 258 atkvæði og 2 fulltrúa í bæjarstjórn
- B listinn fékk 486 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn
- D listinn fékk 444 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn
- L listinn fékk 404 atkvæði og 3 fulltrúa í bæjarstjórn
Við töpuðum fylgi frá síðustu sveitarstjórnarkosningum, en
við getum samt nokkuð vel við unað.
Stefnt er að
áframhaldandi meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðismönnum svo
við fáum fleiri tækifæri til góðra verka fyrir
Fljótsdalshérað og íbúa þess og til áhrifa í anda
félagshyggjunnar.
Við þökkum ykkur, ágætu stuðningsmenn kærlega, fyrir
stuðninginn og alla þá aðstoð sem þið hafið lagt fram í
kosningabaráttunni.
Förum brosandi út í sumarið og njótum þess að vera íbúar í
hinu fallega og veðursæla sveitarfélagi, Fljótsdalshéraði.
Frambjóðendur Héraðslistans.

|