Um Dynamics NAV í áskrift
Microsoft Dynamics NAV í áskrift er hagkvæm og þægileg nýjung sem gefur kost á viðskiptalausnum í mánaðarlegri áskrift.
Greitt er mánaðarlegt gjald fyrir hugbúnað, uppfærslu- og þjónustugjöld. Innifalið er vistun á gögnum, afritun, öryggisvarnir og SQL gagnagrunnur.
Síminn sér um vistun og afritun á gögnum í fullkomnu tækniumhverfi.
Microsoft Dynamics NAV í áskrift er sveigjanleg lausn sem gefur kost á breytilegum fjölda notenda að kerfinu eftir því sem hentar í hverjum mánuði sem heldur kostnaðinum í lágmarki.
Með Microsoft Dynamics NAV í áskrift fylgir létt útgáfa af Wise greiningartóli sem inniheldur öflugar greiningarskýrslur.
Hagkvæm og sveigjanleg lausn