Dynamics NAV
Microsoft Dynamics NAV er viðskiptahugbúnaður sem veitir góða yfirsýn yfir reksturinn og nær til allra þátta virðiskeðjunnar frá fjárhagsstjórnun, framleiðslu, sölu, markaðssetningu, skýrslugerð og margt fleira.
Kerfið er notendavænt og sveigjanlegt þar sem einfalt er að bæta við kerfiseiningum eftir því sem fyrirtækið vex og dafnar.
30 ára reynsla býr að baki þróunar kerfisins og í dag nota um 84 þúsund fyrirtæki og stofnanir eða yfir 1.000.000 notendur í 42 löndum kerfið í rekstri sínum.
3700 samstarfsaðilar víðsvegar um heiminn þjóna Dynamics NAV viðskiptavinum og hafa yfir 2000 sérlausnir verið þróaðar til að mæta kröfum viðskiptavina.
Microsoft Dynamics NAV gefur möguleika á tengingum við fjölda lausna s.s Microsoft Office, CRM og SharePoint svo eitthvað sé nefnt.
Stöðluð lausn sem einfalt er að bæta við hinum ýmsu sérkerfum frá Maritech