
Viðskiptagreind

Viðskiptagreind
Wise sérlausnir Maritech á sviði viðskiptagreindar veita fjölbreytta möguleika á að fylgjast með og greina upplýsingar fyrir stjórnendur í rauntíma. Um er að ræða sérhannað umhverfi fyrir úrvinnslu gagna og miðlun verðmætra upplýsinga.
Wise lausnirnar vinna jafnt á raungögnum sem og OLAP teningum með vöruhús gagna sem millilag og auðvelda ákvarðanatöku, ásamt því að veita betri yfirsýn yfir reksturinn.
Lausnirnar eru í kunnuglegu umhverfi og aðgengilegar fyrir notendur.
Kynntu þér lausnir okkar á vörusíðu lausnanna www.wise.is (ensk útgáfa)
Nýjustu upplýsingar eru forsenda réttra ákvarðana
- Wise stjórnendasýn (Analyzer) sýnir mismunandi sýn á upplýsingar úr fjárhag, viðskiptamanna- og lánardrottnabókhaldi, birgðum og verkbókhaldi. Notandinn getur auðveldlega breytt sinni sýn, vistað og veitt öðrum aðgang. Ekki er lengur þörf á að skrifa út skýrslur, heldur getur notandinn á aðgengilegan hátt nálgast upplýsingarnar þegar hentar.
- Wise BI teninga er hægt að skoða með Wise Analyzer út frá mismunandi sjónarhornum. Hægt er að velja á milli teninga s.s fjárhags-, birgða-, sölu- og verktenings.
- Wise fyrir Dynamics NAV er innbyggt í kerfi Microsoft Dynamics NAV sem gerir notendum kleift að nálgast lykilupplýsingar á aðgengilegan hátt.
- Wise skýrslur gera notendum kleift að gerast áskrifendur eða taka út skýrslur með lykiltölum rekstrar s.s varðandi fjárhag, rekstur, viðskiptatengsl eða mannauð. Upplýsingar eru uppfærðar hvort sem er í rauntíma eða á ákveðnum tímapunkti og komið áleiðis til notenda með þeim hætti sem hentar hverju sinni.
- Wise farsímalausn er Windows Phone 7 farsímalausn fyrir notendur Microsoft Dynamics NAV. Wise farsímalausn gefur kost á rauntímaupplýsingum úr rekstri fyrirtækja beint í símann sem einfaldar og flýtir fyrir ákvarðanatöku.
Helstu sérlausnir Maritech á sviði viðskiptagreindar eru:
- Wise Analyzer - alhliða greiningartól gagna
- Wise BI teningar - vinna á vöruhúsi gagna
- Wise Phone - farsímalausn - gefur möguleika á rauntímaupplýsingum beint í farsímann þinn
Auk sérlausna á sviði viðskiptagreindar eru ýmsar lausnir sem hentar vel að tengja við og má þá helst nefna :
- Starfsmannakerfi
- Launakerfi
- Sveitastjóri
- Húsaleigukerfi
- Flutningakerfi
- Sérfræðiverkbókhald





















