Viðskiptalausnir
Við hjá Maritech trúum því að góðar lausnir hjálpi fyrirtækjum í því að einbeita sér að sinni kjarnastarfsemi. Þess vegna hefur starfsfólk Maritech það að leiðarljósi að hanna einfaldar lausnir sem vinna vel saman og eru notendavænar.
Viðskiptalaunsir Maritech eru þróaðar í Microsoft Dynamics NAV sem er eitt mest selda viðskiptakerfið í heiminum í dag. Lausnirnar gera fyrirtækjum kleift að vinna með fjárhagsupplýsingar sínar og hafa yfirsýn yfir allan reksturinn á einum stað.
Vinnuumhverfi notandans er eins alls staðar í kerfinu sem lágmarkar þjálfunarkostnað og einfaldar vinnuna. Hægt er að bæta við nýjum lausnum eftir því sem reksturinn stækkar og/eða breytist.
Góð yfirsýn yfir rekstur tryggir þér samkeppnisforskot