
Fréttir
Toolpack kynning 8. febrúar
01. febrúar 2012
Maritech í samstarfi við Opin Kerfi og Microsoft á Íslandi bjóða þér á kynningu á nýrri lausn, Toolpack áætlunarkerfi, á Grand hótel þann 8. febrúar n.k. kl. 14:00-16.00.

Aðalfyrirlesarinn Martin Thy Asmussen, verkefnastjóri frá Toolpack, mun kynna kerfið, en hann er með áralanga reynslu af áætlanagerð.
Toolpack er danskt hugbúnaðarfyrirtæki og vottaðir Microsoft ISV samstarfsaðilar, sem staðið hafa að þróun áætlunarkerfisins síðastliðin 9 ár, við góðar viðtökur stjórnenda víðs vegar um heiminn.
Toolpack nýtir Excel viðmótið með undirliggjandi SQL gagnagrunn.
Helstu eiginleikar kerfisins eru:
- Rauntölur úr fjárhagskerfum eru lesnar inn í Toolpack
- Fjárhagstölur, staða viðskiptamanna, sölutölur
- Gefur góða yfirsýn og minnkar tímann við öflun og sannreyningu ganga
- Getur dreift áætlanatölum t.a.m:
- Út frá fylgni í rauntölum síðasta árs, eftir mánuðum, árshlutum o.s.frv.
- Sýnir skiptingu áætlunar niður á ábyrgðaraðila eftir skilgreindum víddum
- Gefur kost á að áætla niður á víddir, s.s. deildir, vöruflokka, vörunúmer o.s,frv.
- Er notendavænt þar sem einfalt er að lesa áætlun niður í fjárhagskerfið eftir að áætlun er lokið
- Gerir áætlun á Efnahagsreikningi og Sjóðstreymi út frá fylgni í raungögnum þægilega
- Býður upp á innsetningu á tölfræðilegum skjölum til að aðstoða við áætlanagerð
- Veitir mikla möguleika á að draga fram niðurstöður á sjónrænan hátt
- Innifelur stjórnendaskýrslur
13:30 - Húsið opnar
14:00 - Gunnar Karl Níelsson - Microsoft Excel 2010
14:20 - Martin Thy Asmussen - Toolpack
16:00 - Spjall við sérfræðinga
Skráðu þig strax í dag!










