Um fyrirtækið


Maritech er söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu. Kerfi Maritech eru í notkun hjá mörgum af stærri fyrirtækjum landsins.

Borgartun_26

Maritech býður staðlaðar Microsoft Dynamics NAV lausnir auk fjölda sérlausna fyrir íslenskan og alþjóðlegan markað. Maritech hefur sérhæft sig í viðskiptahugbúnaði á sviði fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga, sjávarútvegs og flutninga. Maritech hefur einnig þróað lausnir byggðar á öðrum Microsoft vörum s.s Microsoft Dynamics CRM, SharePoint, SQL 2005/2008 og Reporting Services.

Maritech hefur áratuga reynslu á markaði og að þjónusta stóran hóp viðskiptavina af öllum stærðargráðum. Maritech er einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics NAV viðskiptahugbúnaðinum á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga frá Microsoft fyrir starfsemi sína þ.a.m. samstarfsaðili ársins hjá Microsoft árin 2010 og 2011 og Fyrirmyndarfyrirtæki VR sl. ár.

Maritech - Borgartúni 26, 105 Reykjavík og Hafnarstræti 102, 600 Akureyri.

Fyrirtækið

  • Maritech er sjálfstætt starfandi hugbúnarðarhús sem einbeitir sér að þróun og stuðningi við fyrsta flokks kerfiseiningum til hagsbóta viðskiptavina okkar.
  • Innan Maritech starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Starfsfólk Maritech hefur það að leiðarljósi að veita viðskiptavinum góða og trausta þjónustu ásamt faglegri ráðgjöf.
  • Traustar og góðar lausnir og áralöng reynsla starfsfólks Maritech tryggir viðskiptavinum samkeppnisforskot..
  • Maritech er í eigu AKVA Group í Noregi.
  • Maritech býður stórt úrval hugbúnaðarlausna sem byggir á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel í grundaðar viðskiptaákvarðanir hratt og af nákvæmni, bygðar á öruggum upplýsingum úr bókhalds og birgðakerfum fyrirtækisins.

Stjórnendur

stjornendur Hrannar

Hrannar Erlingsson
Framkvæmdastjóri

stjornendur JonHeidar Jón Heiðar Pálsson
Sviðsstjóri sölu-og markaðssviðs
stjornendur Margret Margrét Gunnlaugsdottir
Sviðsstjóri þjónustu- og ráðgjafasviðs
stjornendur SigridurHelga Sigríður Helga Hermannsdóttir
Sviðsstjóri Þróunarsviðs
stjornendur StefanTorfi Stefán Torfi Höskuldsson
Fagstjóri .NET lausna
stjornendur SteinunnRagna Steinunn Ragna Hjartar
Fjármálastjóri

Atvinnuauglýsingar sendist á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

  • Dynamics NAV
  • Viðskiptalausnir
  • Sjávarútvegslausnir
  • Sveitarfelagalausnir
  • Vidskiptagreind
  • Veflausnir
  • Þjónustulausnir
  • Flutningslausnir
  • Dynamics NAV í áskrift