Á næstunni

No events

Almennir viðburðir

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Grunnskólanemendur reisa líkan af torfbæ!

galtastadir.jpg(mynd frá Þjóðminjasafni Íslands) Föstudaginn 28.maí hefst nokkurra daga samstarfsverkefni Minjasafnsins og áhugasamra nemenda í 8.bekkjum Egilsstaðaskóla. Nemendur munu reisa líkan af torfbæ á lóð safnahússins.

Read more...

Framhaldsskólar

Saga Austurlands er áfangi kenndur við Menntaskólann á Egilsstöðum. Nú á vormánuðum 2008 hafa nemendur unnið að stóru verkefni í tengslum við Minjasafn Austurlands. Hér fyrir neðan birtist lýsing á því.

Safnaverkefnið er stóra verkefnið í þessum áfanga. Verkefnið er unnið í samstarfi við Minjasafn Austurlands og Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði.
Verkefnið snýst um að
a) velja sér grip í samráði við starfsfólk safnanna,
b) rannsaka alla hugsanlega fleti hans,
c) skrifa ítarlega ritgerð um niðurstöður rannsóknar,
d) skrifa greinagóðan útdrátt sem verður vistaður á vef minjasafnsins
e) skrifa dagbók um framlag til og framþróunn verkefnisins.

Markmið:
Leita upplýsinga með fjölbreyttum hætti
Geta skipulagt sig og unnið sjálfstætt
Setja fram upplýsingar á frambærilegan hátt
Skrifa læsilega ritgerð þar sem reglum ME um heimildaritgerðir er fylgt
Skrifa heiðarlega dagbók
Sýna viðfangsefninu áhuga og leggi metnað í alla þætti verkefnisins

Vinnutilhögun:
Almennt
Nemendur tveir og tveir saman. ( möguleiki á einstaklingsvinnu)
Verkefnið felst í að greina muni sem varðveittir eru á Minjasafni Austurlands og skal m.a. greint hver munurinn er, uppruni og aldur, notagildi, hver var eigandi og bera saman við aðra sambærilega muni.

Dagbók
Nemendur eiga allir að halda dagbók um framvindu verksins í heild og framlag þeirra til hópsins, dagbók skal skilað hálfsmánaðarlega. Fyrstu skil dagbókar eru 28.mars. Vinna að verkefninu ætti að vera um 6,6 tímar á viku og skal því hver nemandi skila skýrslu í dagbók sinni um hvernig hann eyddi þessum 6,66 tímum við vinnu verkefnisins. Farið er fram á nokkuð nákvæmar færslur, þ.e. færslur skulu innihalda hvað kom út úr vinnustundinni. Dagbók skal færa á tölvuvinnslu formi til dæmis í tölvupósti.

Ritgerð
8-10 blaðsíður að lengd, 12 p. leturstærð, línubil 1,5 og að öðru leyti samkvæmt reglum ME um ritgerðasmíð.
Í ritgerðinni eiga nemendur að lýsa nákvæmlega hver munurinn er, til hvers hann var notaður, hvaðan hann er uppruninn og hver átti hann. Síðan er hægt að bera hann saman við aðra muni. ( athugið að eðli gripanna er misjafnt þannig að nemendur verða sjálfir að vera duglegir að finna fleti á rannsókn hvers fyrir sig ). Vinnuaðferðir eru margvíslegar: ljósmyndun, viðtöl, heimildarýni, bréfasamskipti og fyrirspurnir við önnur söfn, erlend sem innlend. Rannsóknarvinnan verður að fara fram undir leiðsögn safnstjóra safnanna.

Útdráttur + þýðing
Sýnilegur afrakstur verkefnisins verður svo vefsíða þannig að nauðsynlegt er að textinn sé hnitmiðaður.

Leikskólar

Leikskólabörn eru velkomin á safnið og er dagskrá sniðin að þörfum hvers hóps fyrir sig. Þá geta starfsmenn safnsins komið í heimsókn í leikskóla á Fljótsdalshéraði, Fljótsdalshreppi og Borgarfjarðarhreppi.

Tímapantanir í síma 471-1412 eða á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Fræðsla

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Teljari

Articles View Hits
154145
daudabanner.jpg

Minjasafn Austurlands, Laufskógum 1, 700 Egilsstaðir - Sími: 471-1412 - Fax: 471-1452