Auglýst eftir safnstjóra!
Staða safnstjóra
Minjasafns Austurlands
er laus til umsóknar frá og með 1. september 2012.
Starfssvið: Yfirumsjón með faglegri starfsemi safnsins. Starfsmannamál. Fjármál.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Hæfniskröfur: MA-háskólapróf í menningarsögulegum greinum, góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar auk jákvæðrar framkomu og þjálfunar í mannlegum samskiptum.
Búseta: Fljótsdalshérað.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní næstkomandi. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist formanni stjórnar safnsins í netfang This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .
Upplýsingar gefur Sigurjón Bjarnason í síma 471 1171 og 848 3314.
Stjórn safnsins áskilur sér rétt til að velja hvaða umsækjanda sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar um safnið eru að finna hér á heimasíðunni.
Stjórn Minjasafns Austurlands
Egilsstöðum
Austfirskar gersemar

Myndir og fróðleikur um ýmsar gersemar að austan.
Sýningin verður síðan áfram á safninu og er vonast
til að hún verði þýdd á ensku og pólsku á næstunni.
Lokað um páskana
Minjasafnið verður lokað frá og með fim.5.apríl til mán.9.apríl.
Opnunartími í apríl og maí: kl.13-16 virka daga.
Bendum gestum á nánari upplýsingar um aðgangseyri og opnunartíma undir flipanum Fyrir gesti.
Gleðilega páska!
Leikjasýningin-Ekki snerta jörðina!-opnuð
Farandsýningin Ekki snerta jörðina! var opnuð formlega þriðjudagskvöld 13.mars og mættu um 30 manns til að spreyta sig í ýmsum leikjum og spilum, skoða gömul leikföng og fræðast lítillega um rannsóknina á bak við sýninguna. Ekki var annað hægt að sjá en að bæði börn og fullorðnir hefðu haft gaman af sýningunni. Allir sem mættu á opnunina fengu Íslendingaspil eða dúkkulísur við brottför.
Þökkum gestum fyrir komuna og bjóðum „börnum“ á öllum aldri að líta inn! Sýningin er opin nú um helgina 17.og18.mars og alla virka daga til föst.30.mars kl.13-16.
(Nánari upplýsingar um sýninguna eru að finna í eldri frétt hér fyrir neðan.)
