Öldungamót í blaki - Ísland

Nýjar fréttir

Nýjar fréttir og fréttatengt efni.

Varstu að versla föt á Öldung???

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Í óskilamunum á Seyðisfirði er poki með fötum sem hafa verið keypt á svæðinu og ekki búið að taka verðmiðana af. Ef þig vantar eitthvað svoleiðis hringdu þá í Íþróttahúsið á Seyðisfirði og lýstu því sem þú keyptir og þá er þetta kannski þitt. síminn í Íþróttahúsinu er 861-7787.
 

Öldungaþing fundargerð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Þá er hún komin fundargerðin frá Öldungaþingi 34.Öldungamóts BLÍ frá 30.04.2009.
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 07 Maí 2009 19:32 )
 

Óskilamunir

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Ef þú hefur gleymt einhverju hér hjá okkur á Egilsstöðum, Fellabæ eða í Brúarási þá getur þú hringt í 4712661 og hún Jóney sendir þér dótið sé það í hennar vörslu. En ef þú heldur að þú hafir gleymt einhverju á Seyðisfirði þá getur þú hringt í Íþróttahúsið í síma 861-7787 og þar eru þær Stína eða Mæja með óskilamuni frá íþróttahúsinu og sundhöllinni.
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 06 Maí 2009 13:34 )
 

Flugfélag íslands í skýjunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Starfsmenn Flugfélags Íslands á Egilstaðaflugvelli vilja þakka þátttakendum Öldungamótsins fyrir háttvísi og prúðmennsku og segja þeir allar vélar hafa staðist áætlanir vegna þess hvað þið stóðuð ykkur vel.
 

34.öldungamóti BLÍ er lokið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Þá eru allir á heimleið eftir að hafa tekið á því á vellinum í 3 daga og svo dansað fram á morgun síðasta daginn. Við í Hetti og Huginn þökkum ykkur blökurum og öðrum gestum fyrir komuna hingað til okkar og óskum ykkur góðrar heimferðar.
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 06 Maí 2009 12:21 )
 
Síða 1 af 10