|
Reisum.is sérhæfir sig í timburhúsum. Bæði kaupum við lóðir sem við byggjum á og seljum ásamt því að geta boðið þeim sem eiga lóðir og vilja byggja heildarlausn á byggingarferlinu, allt frá jarðvegsskiptum til innréttinga.
Hvað getum við boðið þér?
Átt þú lóð og vantar að fá á hana hús? Þá getum við boðið þér heildar pakkann all frá jarðvegsskiptum til fullbúins timburhúss.
Hvernig er verkferlið?
Þú byrjar á að hitta arkitektinn okkar með þær hugmyndir sem þú hefur og gera teikningar sem eru eins og þú vilt.
Þær teikningar eru efnismetnar og kostnaðaráætlun gerð. Gerð er heildaráætlun að kostnaði fyrir grunnvinnu, innréttingar og annað sem viðskiptavinur óskar eftir. Ákveðnir standardar eru í húsunum sem síðan er breytt og hagrætt að óskum hvers og eins, s.s. innréttingar, utanhúss klæðning, hurðir, tæki og annað.
Á meðan beðið er eftir efni að utan er lóðarvinna unninn, grunnur steyptur, gólfhiti og aðrar lagnir steyptar í plötu og þar ofaná kemur svo húsið.
Við sjáum um allar teikningar, arkitektateikningar, verkfræðingsteikningar, rafmagnsteikningar, það eina sem þú þarft að gera er að slaka á og fylgjast með húsinu þínu rísa.
Einfaldast er að kaupsamningur sé undirritaður, ca helmingur greiddur við fokheldi og svo afgangur við afhendingu eins og almennt gerist með nýbyggingar.
Verðið á þessum húsum er mun hagstæðara en það sem gengur og gerist hér á heimamarkaði miðað við hvað lagt er í þau.
Við höfum bæði verið að skila af okkur fokheldu, tilbúnu undir málningu eða fullbúnu, allt eftir óskum viðskiptavina. Fullbúð hús, þá erum við að tala um fyrsta flokks innréttingar, tæki og gegnheilar viðarhurðir.
Algengt er að við tökum okkur ca 3-4 mánuði til að fullbúa hús frá því að efnið kemur á staðin.
|