|
Stefán Einarsson ehf er verktaka fyrirtæki sem sérhæfir sig í jarðvegsvinnslu hvers konar ásamt því að taka að sér ýmis konar flutninga á sjó og landi. Einnig tökum við að okkur teinsteypusögun, þá sérstaklega á höfuðborgar svæðinu nema um stærri verkefni sé að ræða.
Fyrirtækið er ættað frá Siglufirði en unnið er vítt og breytt um landið. Í augnablikinu eru höfuðstöðvar þess á Akureyri.
Vélafloti fyrirtækisins samanstendur af:
- Fjórum gröfum; einni 22 tonna og tveimur nýlegum 30 tonna og einni smágröfu.
- Tveimur treilerum; Benz og Man.
- Einum gömlum ódrepandi þriggja drifa Benz sem hefur viðurnefnið Gamli Benz.
- Hinir ýmsu tengivangar s.s. flatvagn, vélavagn og malarvagn.
|