|
Ţorrablót 2012 |
|
|
|
laugardagur, 07 janúar 2012 |
Þorrablót Skaftfellingafélagsins verður haldið í Skaftfellingabúð
laugardaginn 21. janúar 2012 og hefst með borðhaldi kl. 20 Húsið verður opnað kl. 19
Veislustjóri Skúli Oddsson
Fjöldasöng stjórnar Friðrik Vignir Stefánsson
Um dansmúsíkina sjá Grétar Örvars og Sigga Beinteins og feðginin Stefán Bjarnason og Helena Marta verða einnig liðtæk við nikkuspil og söng
Glæsilegt þorrahlaðborð frá Höfðakaffi
Við miðapöntunum taka
Hákon (821 2115), Helgi (899 4818) og Anna (861 5817)
til og með 18. janúar.
Aðgangseyrir kr. 5.800
|
|
|
Ađventustund |
|
|
|
mánudagur, 28 nóvember 2011 |
|
Skaftfellingafélagið og Söngfélagið standa fyrir aðventustund
sunnudaginn 4. desember 2010
kl. 15:00 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178.
Söngfélagið syngur nokkur jólalög, bornar verða fram kaffiveitingar og gengið í kringum jólatré. Síðan er von á jólasveinum á svæðið og munu þeir segja og syngja nokkur orð og lög.
Aðgangseyrir kr. 1000 fyrir 16 ára og eldri.
|
|
|
Myndakvöld - 17. nóv. 2011 |
|
|
|
mánudagur, 14 nóvember 2011 |
|
Fimmtudagskvöldið 17. nóvember kl. 20 í Skaftfellingabúð. Fyrst mun Jón Viðar Sigurðsson jarðfræðingur fjalla um mikla skriðu eða berghlaup sem féll á Morsár-jökul árið 2007.
Jón fór á vettvang í maí 2007 til að rannsaka og mæla skriðuhlaupið og hefur síðan fylgst reglulega með ferðalagi og þróun skriðunnar sem hvílir á jöklinum. Skriðan er áhugavert fyrirbæri sem skemmtilegt er að skoða enda er um-hverfi Morsárjökuls stórfenglegt.
Síðan verða sýndar myndir úr Skaftár-tungu, aðallega frá Árna í Hrífunesi, bæði ljósmyndir og kvikmyndir. Vigfús Gunnar Gíslason frá Flögu mun kynna myndirnar og jafnvel verða með nýrri myndir frá sama svæði. Aðgangur ókeypis.
Svo er búið að ákveða að hafa 4 og síðasta spilakvöldið 24. nóv.
Og svo er aðventustund 4. desember.
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 3 af 121 |