Minna leturStærra letur
Forsíða
Fréttir
Fréttabréf
Sagan
Stjórn
Eldri stjórnir
Myndasafn
Tenglar
Gestabók

frettabref-new.gif Fréttabréf - smellið hér

skaftfellskar_sogur_sagnir.jpg

Auglýsing - Smella hér 

 
Gönguferð með Brúnum; Hunkubakkar PDF Prenta
þriðjudagur, 31 ágúst 2010
Þá er farið að líða að síðustu skipulögðu göngunni á vegum Ferðamálafélags Skaftárhrepps þetta sumarið, en ánægjulegt er hve góðar móttökur þær hafa fengið.  
Nú er tækifærið fyrir þau ykkar sem hafa verið á leiðinni í allt sumar….  og auðvitað mætum við hin líka 

Ferðinni er að þessu sinni heitið austur með Brúnum; frá Hunkubökkum að Kirkjubæjarklaustri á morgun miðvikudaginn 1. september.

Hana leiða hjónakornin á Hunkubökkum, Björk Ingimundardóttir og Björgvin Harðarson.

Mæting er við Hunkubakka (fjárhúsið þeirra B&B) kl. 19:00, en fyrir þá sem koma austan að er tilvalið að sameinast í bíla við Skaftárskála kl. 18:50.  Verð í ferðina er kr. 500.


Hlökkum til að sjá ykkur!!
Göngudeild Ferðamálafélagsins

 
Gönguferðir um helgina 21. & 22. ágúst PDF Prenta
föstudagur, 20 ágúst 2010

Gönguferð um Meðalland; Botnar – Hólmasel – Hnausar

Á sunnudaginn kemur stendur Ferðamálafélag Skaftárhrepps fyrir spennandi göngu um Meðallandið, sem víða leynir á sér.

Gangan hefst við Botna, þar sem Fljótsbotninn undraverði verður skoðaður.  Síðan verður gengið með Eldvatninu og komið við í Hólmaseli, kirkjustað Meðallendinga sem fór undir hraun í Skaftáreldum.  Kirkjumunir urðu allir Eldinum að bráð, þ.á.m. klukkan úr Þykkvabæjarklausturskirkju, sem fengin hafði verið að láni og enn er óskilað (!!)

Í lok göngunnar verður tekið hús á Villa á Hnausum og baðstofan þar á bæ skoðuð.  Einnig stendur til að heimsækja slóðir loðna mannsins á Skarði.

Mæting er við Botnaafleggjarann kl. 9:00.  Gangan er nokkuð létt og hæfir flestum þokkalega sprækum.  Áætluð heimkoma er fyrir kvöldmat.

Verð í ferðina er að hámarki 1.500 krónur og eru akstur og fararstjórn innifalin.  Athugið að hægt er að fá far frá Klaustri ef það hentar.  Endanlegt verð mun ráðast af fjölda þátttakenda og fyrirkomulagi aksturs.

Um fararstjórnina sér Júlíana Þóra Magnúsdóttir þjóðfræðingur frá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi og mega þátttakendur því eiga von á mörgum góðum sögum.

Skráning er hafin á netfanginu Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það , hjá Ingibjörgu í s. 899-8767 og Ólöfu Rögnu í s. 848-5427.  Það er til mikilla bóta ef fólk skráir sig tímanlega, svo að hægt verði að skipuleggja fyrirkomulag aksturs.

Sjáumst spræk með nesti og nýja skó!

Göngudeild Ferðamálafélagsins

&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&

Berjaferð í nágrenni Kvískerja.

Ferðafélag A-Skaftfellinga stendur fyrir berjaferð í nágrenni Kvískerja á laugardaginn.  Því er gott tækifæri fyrir fólk sem kemur lengra að, að smella sér í báðar ferðirnar og gera góða helgarferð.  Sjá www.gonguferdir.is/index.php?option=com_content&task=view&id=12&Itemid=26

Upphaf ferðarinnar er miðuð við bílastæði á Höfn.

Þarna er upplagt að tína sér nesti fyrir ferðina um Meðalland !

 
Sumarskálm 2010 PDF Prenta
föstudagur, 04 júní 2010
Dagana 18.-20. júní 2010 stendur fyrir dyrum árleg sumarganga Skálmar.
Er þetta níunda sumarið sem haldið er á vit ævintýranna og hafa stífar vetrar- og voræfingar skilað flestum sprækum og sprellfjörugum út í sumarið. Að þessu sinni verður gengið um Út-Síðu og hafst við á sveitarsetrinu Skál. Bærinn í Skál stóð fyrir Skaftárelda niðri á sléttlendinu, en hraunflóðið brenndi hann upp ásamt kirkjunni. Þar var kirkja frá fornu fari og helguð heilögum Nikulási í kaþólskum sið. Höfðingjasetur var í Skál til forna og stórbýli.
Fyrri daginn verður gengið frá Skaftárdal að Skál og þann seinni verður gengið upp Skálarheiðina, inn að Hervaðarstöðum, Helgadal og Holtsdal. Gert er ráð fyrir um 8 tíma göngu hvorn dag. Að venju er mjög góð þátttaka í sumargönguna. Áhugasamir geta þó enn slegist í hópinn og er bent á að leita sér nánari upplýsinga hjá  Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það r.
Fararstjóri er Eiríkur Jónsson á Skaftárdal. 
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 3 af 84
 
Viðburðir
There are no upcoming events currently scheduled.
Skoða dagatal

heidmork
songfelagid
skalm
kvikmyndaklubbur

 

Auglýsingar:

Smella hér:

dynskogar.gif

Smella hér:

ftspor-fors.gif