|
Hagyrđingakvöld |
|
|
|
mánudagur, 12 apríl 2010 |
|
Í tilefni sjötíu ára afmælisins verður haldið hagyrðingakvöld í Skaftfellingabúð síðasta vetrardag, 21. apríl 2010, kl. 20:00, undir stjórn Ómars Ragnarssonar.
Þar leiða saman hesta sína Austur-Skaftfellingarnir Torfhildur Hólm Torfadóttir á Gerði, Halldór Þorsteinsson í Svínafelli og Vestur-Skaftfellingarnir Heiða Guðný Ásgeirsdóttir á Ljótarstöðum og Reynir Ragnarsson í Vík. Að kveðskap loknum verður stiginn dans undir harmonikkuleik valinkunnra snillinga.
Aðgangur ókeypis, en léttar veitingar seldar.
|
|
|
Sjötíu ára afmćli Skaftfellingafélagsins |
|
|
|
ţriđjudagur, 23 mars 2010 |
Talið er að hátt á þriðja hundrað manns hafi sótt Skaftfellingamessu í Breiðholtskirkju og afmæliskaffi í Skaftfellingabúð á sjötíu ára afmæli Skaftfellingafélagsins, sunnudaginn 21. mars síðastliðinn. Prestar Breiðholtskirkju, þau sr. Gísli Jónasson og sr. Bryndís Malla Elídóttir ásamt prestum úr Vestur-Skaftafellssýslu, þeim sr. Ingólfi Hartvigssyni á Kirkjubæjarklaustri og sr. Haraldi M. Kristjánssyni í Vík þjónuðu fyrir altari, en auk þeirra kom að messuhaldinu fyrrum prestur Ásaprestakalls, sr. Hjörtur Hjartarson. Kirkjukórar úr Vestur-Skaftafellssýslu leiddu messusöng með Söngfélagi Skaftfellinga undir stjórn Brians R. C. Haroldssonar og Kára Gestssonar. Það var þétt setinn bekkur í Skaftfellingabúð eftir fjölmenna messu. Kristinn Kjartansson og Stefán Bjarnason tóku á móti gestum með harmonikkuleik. Formaður félagsins til 17 ára, Skúli Oddsson, bauð gesti velkomna og fljótt var gengið að drekkhlöðnu kaffiborðinu. Eins og mörg undanfarin ár sá Inga Jóna Sigfúsdóttir um veisluhaldið, útbjó krásir á veisluborðið ásamt Söngfélagsfólki. Söngfélagið söng fimm lög undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar og að lokum komu gestakórar úr Vestur-Skaftafellsýslu og sungu með Söngfélaginu lögin Smávinir fagrir og Brimströndin undir stjórn Kára Gestssonar kórstjóra í Vík. Að lokum sungu allir kórarnir Skaftárþing, sem er einkennislag félagsins. Stutt ávörp og árnaðaróskir fluttu Kolbrún Einarsdóttir formaður Söngfélags Skaftfellinga og Guðmundur Ingi Ingason formaður Kirkjukórs Prestbakkakirkju. Svavar M. Sigurjónsson stjórnarmaður hefur síðustu árin unnið ötullega að söfnun mynda frá starfi félagsins allt frá stofnun þess og þeim myndum var varpað á vegg í hliðarsal. Svavar hefur einnig safnað gömlum myndum úr sýslunum og eru þær flestar merktar. Er það mál manna að vel hafi til tekist og veislugestir fóru heimleiðis saddir og sælir. Stjórn Skaftfellingafélagsins þakkar gestum fyrir komuna og öllum þeim er að samkomunni stóðu fyrir gott starf.
|
|
|
Skaftfellingamessa og 70 ára afmćli Skaftfellingafélagsins ! |
|
|
|
mánudagur, 01 mars 2010 |
|
Sunnudaginn 21. mars næstkomandi, á sjötíu ára afmæli Skaftfellingafélagsins í Reykjavík, koma kirkjukórar Vestur Skaftafellssýslu og syngja með Söngfélagi Skaftfellinga við messu í Breiðholtskirkju. Athöfnin hefst kl. 14:00. Að lokinni messu verður afmæliskaffi í Skaftfellingabúð að Laugavegi 178. Þar verður ýmislegt rifjað upp frá 70 ára sögu félagsins. Nánar auglýst síðar. |
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 13 - 15 af 84 |