| Heiðmerkurdagur |
| fimmtudagur, 27 maí 2010 | |
|
Á laugardaginn næsta 29. maí verður hátíð í Skaftafelli sem er reitur félagsins í Heiðmörk. Hátíðin verður frá kl. 13:00 til c.a. 16:00. Þar verður boðið upp á kórsöng, harmonikuspil, leiki, göngur og grillaðar pylsur. Gunnar Már Hauksson (frá Hólum) og Guðjón Jónsson (frá Fagurhólsmýri) segja frá upphafi gróðursteningar og sögu reitsins. Allir Skaftfellingar eru hvattir til að mæta og skoða reitin og sjá þær framkvæmdir sem hafa verið gerðar seinustu misserin. Fyrir þá sem ekki rata þá er beygt hjá Rauðhólum af þjóðveginum og síðan keyrt fram hjá Elliðavatnsbænum og keyrt þar áfram þangað til komið afleggjara sem er merktur Hraunslóð og inn þann legg þar til komið er að reitnum sem er merktur Skaftafell. Kort af leiðinni er hér: |